Mariofögnuðurinn hefur staðið yfir alla helgina en nú er komið að úrslitum. Um helgina fór fram ratleikur í marioþema í Arena og leikirnir Mario-Kart og Super Smash Bros spilaðir klukkutímum saman.
Sýnt er frá úrslitunum á Twitch-síðu rafíþróttasamtakanna og er hægt að fylgjast með spilurunum keppa í Super Smash Bros og síðar í Mario-Kart.
Spilarinn „Melih“ sem er einn besti spilari norðurlandanna í Super Smash Bros var fenginn til að keppa á mótinu og fór í gegnum alla úrslitakeppnina ósigraður og er mættur í úrslitin sem standa yfir.