Leyfa áhugasömum að prófa frítt

Leikurinn verður frír frá 15. til 20. mars.
Leikurinn verður frír frá 15. til 20. mars. Skjáskot/CallofDuty

Framleiðandi skotleikjanna Call of Duty, Activision, gaf út tilkynningu þess efnis að þeir sem vilja prófa Modern Warfare 2 geti náð í leikinn gjaldfrjálst 16. mars. Miðvikudaginn 15. mars kemur út ný uppfærsla á leiknum og verður nýtt kort aðgengilegt öllum.

Hægt verður að spila leikinn frítt frá 15. til 20. mars næstkomandi.

Þetta er í annað sinn í sögunni sem leikjaframleiðandinn leyfir spilurum að prófa netspilunarhluta leiksins frítt en í fyrra skiptið var það gert í desember árið 2021.

Talið er að þetta sé tilraun til þess að fjölga spilurum og auka vinsældir leiksins en framleiðandi leiksins lét hafa eftir sér að ekki nógu margir hafi þó keypt sér leikinn eftir síðasta frípassa.

Leikurinn hefur fengið gríðarlega góða dóma síðan hann kom út síðla árs 2022 og hefur slegið mörg sölumet.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert