Keypti heilt hverfi fyrir fjölskyldu og starfsfólk

MrBeast er einn sá vinsælasti á YouTube.
MrBeast er einn sá vinsælasti á YouTube. Skjáskot/Youtube

Ein vinsælasta YouTube-stjarna heimsins, Jimmy Donaldson, betur þekktur sem MrBeast er þekktur fyrir að fara í öfgar, en oft á góðan hátt. Hann hefur gefið út myndbönd á YouTube í nokkur ár þar sem hann gefur af sér peninga eða greiðir læknishjálp fyrir einstaklinga sem þurfa á því að halda.

Milljónir fylgjenda og áhorfenda

Myndböndin hans eru með yfir 40 milljarða áhorfa samanlagt sem er eitt það mesta á miðlinum. Nýlega gaf hann út myndband þar sem hann greiddi aðgerð fyrir blinda og sýndi þar nýja hlið á sjálfum sér en hann er vanur að gefa dýra hluti eins og einkaþotu eða bíla –eða bara peninga. 

Nú hefur MrBeast keypt heilt þorp í iðnaðarbænum Greenville í Norður-Karólínu. Greenville er uppeldisstaður MrBeast og því furða fáir sig á staðsetningunni. Hann sjálfur keypti sér hús í hverfinu árið 2018 og hefur nú undanfarna mánuði boðið í húsin í kringum sitt eigið.

MrBeast á nú 5 af 6 fasteignum hverfisins en hann segir síðustu eigendur síðasta hússins vilja búa þar áfram enda góður skóli í nágrenninu sem börnin ganga í. Hann segir einnig að markmiðið sé að geta boðið fjölskyldu sinni og starfsfólki að flytja í húsin og vera nær sér. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert