Reyna að komast af með hjálp Nicolas Cage

Hér má sjá skjáskot af Nicolas Cage úr stiklunni.
Hér má sjá skjáskot af Nicolas Cage úr stiklunni. Skjáskot/BI

Vinsæli tölvuleikurinn Dead by Daylight, sem gengur út á að reyna lifa af hryllilegan veruleika fær nýja viðbót innan tíðar.

Framleiðandi leiksins, Behaviour Interactive, birti stiklu þar sem leikarinn Nicolas Cage var kynntur til leiks en ekki er enn ljóst hvaða hlutverki hann muni gegna í leiknum.

Eina sem framleiðandinn hefur gefur upp varðandi þessa nýju viðbót er ein setning sem má sjá í leiknum.„Ekkert er öflugra en ímyndunaraflið, það getur breytt allri hugsun og umturnað öllu sem þú heldur að þú vitir“ 

Aðdáendur leiksins velta því fyrir sér hvort Nicolas Cage muni vera morðingi í leiknum eða hjálpa spilurum að komast af. Uppfærslan verður aðgengileg öllum í júlí.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert