Þurfa að greiða 14 milljarða í skaðabætur

Nicolo Laurent stígur niður sem forstjóri Riot Games.
Nicolo Laurent stígur niður sem forstjóri Riot Games. Samsett mynd

Tölvuleikjaframleiðandinn Riot Games, sem hönnuðu leikina League of Legends og Valorant, tilkynntu á dögunum nýjan forstjóra fyrirtækisins. Fyrrverandi forstjóri fyrirtækisins hefur reynt frá árinu 2019 að breyta menningu innan fyrirtækisins en árið 2018 var fyrirtækið lögsótt fyrir að bjóða ekki upp á sömu laun og tækifæri fyrir konur og karla.

Var fyrirtækinu gert að greiða konunum, sem voru 1548 talsins, skaðabætur sem hljóðuðu upp á 14 milljarða íslenskra króna. Eftir lögsóknina hefur Riot Games ráðið fleiri konur í flestar stöður fyrirtækisins sem og stjórnarstöður. 

Nicolo Laurent mun stíga niður og A. Dylan Jadeja tekur við í hans stað en Dylan hefur starfað hjá Riot Games frá árinu 2011. Síðan árið 2019 hefur Riot Games ráðið í ýmsar stöður innan fyrirtækisins sem eiga að passa upp á réttindi starfsmanna og stuðla að jákvæðri þróun og samskiptum á vinnustaðnum.

Nicolo Laurent var ákærður árið 2019 af fyrrverandi aðstoðarmanni sínum fyrir kynferðislega áreitni. Engar fréttir hafa borist af ákærunni síðan árið 2019.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert