Keypti hatt á 18 milljónir króna

YouTube-stjarnan IShowSpeed kemst reglulega í fréttirnar.
YouTube-stjarnan IShowSpeed kemst reglulega í fréttirnar. Skjáskot/Facebook

YouTube-stjarnan og streymarinn IShowSpeed keypti á dögunum hatt fyrir slysni í tölvuleiknum Roblox en hatturinn er einn dýrasti hlutur sem hægt er að kaupa í leiknum.

IShowSpeed er þekktur fyrir að gera umdeilanlega hluti. Hann kveikti t.d. í flugeldum í herberginu sínu, eins sýndi hann frá tvífara Cristiano Ronaldo og sagði hann vera hinn eini og sanni og þessi kaup í Roblox fara á þennan merkilega lista afreka.

Í myndskeiðinu ætlar hann að plata áhorfendurnar og láta þá halda hann hafi gengið frá kaupunum en í raun gekk hann frá þeim og eignaðist hattinn. 

Hatturinn sem ber heitið „Midnight Blue Sparkle Time Roblox fedora“ kom út árið 2013 og í einungis 100 eintökum. IShowSpeed hélt hann yrði spurður tvisvar um staðfestingu á kaupunum vegna þess hve há upphæðin var en svo var ekki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert