Rafíþróttamaðurinn Karel Twisten féll fyrir eigin hendi

Karel „Twisten“ var einungis 19 ára gamall.
Karel „Twisten“ var einungis 19 ára gamall. Skjáskot/Vitality

Rafíþróttamaðurinn Karel „Twisten“ Ašanbrener er fallinn frá, 19 ára að aldri. Twisten hefur leikið með Vitality í leiknum Valorant frá árinu 2022 en hann hafði áður spilað fyrir liðið BIG.

Twisten fæddist í Tékklandi árið 2003 og var einn af bestu Valorant spilurum í Evrópu. Vitality greindi frá fréttunum á Twitter-síðu sinni þar sem fjölskyldu og aðstandendum er vottuð samúð á krefjandi tímum.

Aðstoðarmaður hans hjá Vitality, Vitality Gorilla, greindi frá því að Karel hafi fallið fyrir eigin hendi og tekur undir orð Vitality að þeir sem eru að ganga í gegnum erfiða tíma að leita sér hjálpar og tala við einhvern.

Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent er á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið er allan sólarhringinn.

Einnig má hafa sam­band við Píeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl. 8-22 alla daga.  Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert