„Þetta er risastökkpallur inn í rafíþróttaheiminn,“ segir Brimir Birgisson, nýkominn af æfingu hjá þýska rafíþróttaliðinu Mousesports í Hamborg síðdegis í gær, föstudag, en hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við liðið og byrjar í ungmennaliðinu.
Spurður hvernig honum lítist á aðstæður segir hann þær vonum framar. „Þetta er flottara en ég gat ímyndað mér. Móttakan hefur verið geggjuð og aðalliðið hefur verið að gefa sér tíma með okkur. Allir mjög almennilegir.“
Hvert stefnirðu sem rafíþróttamaður?
„Ekki að verða bestur á Íslandi, heldur í Evrópu!“
Svo mörg voru þau orð, að þessu sinni, en þess má geta að Morgunblaðið þurfti að fá formlegt leyfi frá markaðsdeild Mousesports til að tala við Brimi. Alvaran hefur greinilega tekið við í lífi þessa unga manns, en Brimir er aðeins 15 ára.
Mousesports hafði fyrst samband við Brimi fyrir tveimur mánuðum til að kanna hug hans til þess að ganga í raðir liðsins. Verið væri að setja saman nýtt ungmennalið í Counter-Strike. Hann tók þeirri umleitan vel og hófst þá ákveðin undirbúningsvinna sem hafði í för með sér talsverða vinnu á hverjum degi. Hann flaug svo utan í vikunni ásamt foreldrum sínum til að líta á aðstæður og skrifa undir samninginn.
Fimm ungmenni rita nú nafn sitt undir samning við Mousesports í þeim tilgangi að spila Counter-Strike, enginn þeirra Þjóðverji, enda er öll Evrópa undir þegar félagið leitar að nýjum efnivið. Hinir fjórir eru frá Finnlandi, Slóvakíu, Ungverjalandi og Búlgaríu. Fimm eru einnig í aðalliðinu. Hvort lið hefur sinn þjálfara.
Mousesports leggur mesta áherslu á Counter-Strike í sínu starfi en er einnig með lið í fleiri leikjum, bæði aðal- og ungmennalið.
Spurður hvernig Brimir hafi tekið þessu öllu svarar faðir hans, Birgir Karl Birgisson:
„Hann er langrólegasti einstaklingurinn í ferðinni. Ég held að honum líði strax eins og að hann eigi heima hérna. Hann er búinn að stefna að þessu í einhvern tíma og það er bara hans vinnusemi sem hefur skilað honum hingað. Hann er búinn að leggja mjög mikið á sig. Við foreldrarnir höfum verið undir það búin í einhvern tíma að hann fengi tilboð að utan en það var samt óvænt að það kæmi frá einu af bestu liðum í heimi. Það verður gaman að fylgjast með framhaldinu.“
Nánari umfjöllun er að finna í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.