Stelpurnar sneru kynja­hlut­fallinu við

Gabríela, Donna og Rósa tóku sér pláss og lyftu stemningunni …
Gabríela, Donna og Rósa tóku sér pláss og lyftu stemningunni í myndverinu. Skjáskot/RÍSÍ

„Hér erum við að taka pláss og þið verðið bara að sætta ykkur við það,“ sagði Donna Cruz þegar hún, Gabríela Krista og Rósa Björk lífguðu heldur betur upp á beinu lýsinguna frá 9. umferð ELKO-Deildarinnar í síðustu viku.

Ólafur Hrafn og Aron Fannar stóðu, eins og svo oft áður, vaktina í síðustu viku og lýstu leikjum Elko-Deildarinnar í Fortnite en fengu öflugan liðsauka í þeim Rósu, Donnu og Gabríelu sem keyrðu upp stemninguna úr sófanum.

Að kvennadeildinni í Valorant frátalinni sagðist Ólafur Hrafn telja víst að þetta væri í fyrsta skipti sem hallaði á karlmenn í myndveri Rafíþróttasambandins í Arena.

Donna greip þennan bolta á flugi og kastaði honum beint til baka með þeim orðum að það væri tími til kominn að þær tækju sér pláss og Rósa bætti við að næsta mál væri að stelpur drifu sig í að skrá sig á mótið. „Það er það sem ég vil sjá.“

Ólafur Hrafn tók heils hugar undir þetta og hvatti þær stelpur sem væri heima að spila Fortnite að koma á næsta mót. Enda væri ekkert að óttast.

Stelpur spila tölvuleiki 

„Ég gæti ekki verið meira sammála,“ hélt hann áfram og benti á að hann hefði þjálfað nokkrar stelpur í gegnum tíðina. „Og það er alltaf jafn geggjað að sjá stelpurnar mæta á fyrstu æfinguna og eru kannski svolítið feimnar. Svo eftir svona 3-4 æfingar þá eru þær bara byrjaðar að skóla alla til. Þá er þægindaramminn kominn.“

Ólafur Hrafn var hress með kynjahlutfallið í útsendingunni.
Ólafur Hrafn var hress með kynjahlutfallið í útsendingunni. Skjáskot/RÍSÍ

Tíunda og síðasta umferð ELKO-Deildarinnar fyrir sjálfa úrslitakeppnina verður spiluð í kvöld en keppt verður til úrslita í Arena laugardaginn 7. desember. „Og það ætla allir að mæta,“ sagði Ólafur Hrafn brattur.  „Ég vil sjá röð inn á Bónus á Smáratorgi,“ bætti Aron við og Rósa lét heldur ekki sitt eftir liggja. „Og við viljum sjá stelpur. Stelpur komiði!“

Ólafur Hrafn beindi þá spjallinu aftur beint að stelpunum í sófanum. „Það er náttúrlega geggjað að hafa ykkur allar hérna. Bara til að sýna líka að stelpur spila tölvuleiki.“

„Algjörlega. Ég er gamer sko,“ tók Rósa undir og þá minnti Ólafur á að hún sé nýkomin til landsins eftir að hafa verið að keppa í Counter Strike fyrir Íslands hönd.

Bikarinn kemur einhvern tímann heim

„Hvað geri ég ekki fyrir landið mitt?“ sagði Rósa hlæjandi. „Málið er að ferðin var geggjuð og þetta var ógeðslega skemmtileg lífsreynsla. En það gekk samt mjög illa í mótinu sjálfu. En þú veist, við bjuggumst alveg við því.“

Rósa benti á að íslenska kvennlandsliðið hafi verið að keppa á móti miklu fjölmennari þjóðum gegn mun reyndari liðum. „En þetta var sjúklega gaman og ógeðslega gaman að hitta alla hina spilarana og þjálfarana.

Við komum sjúklega glaðar úr þessari ferð, búnar að læra helling af nýju stöffi sem við tökum bara næsta ár. Þetta er bara klifur skilurðu? Svo bara einn daginn komum við með bikarinn heim. Ekki spurning.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert