Rafmagnað andrúmsloft á Íslandsmeistaramóti ungmenna í rafíþróttum

Mikil spenna ríkti þegar keppt var í Fortnite á KIA …
Mikil spenna ríkti þegar keppt var í Fortnite á KIA Íslandsmeistaramóti ungmenna Ljós­mynd/​rafit­hrott­ir.is

Helgina 5.–6. apríl fylltist Arena við Smáratorg af spennu og keppnisanda þegar fyrsta opna Íslandsmeistaramót ungmenna í rafíþróttum fór fram. Mótið, KIA Íslandsmeistaramót ungmenna, sem var haldið af Rafíþróttasambandi Íslands (RÍSÍ) í samstarfi við KIA, Corny, Look-o-Look og Ljósleiðarann, var sögulegt og gaf ungmennum um allt land tækifæri til að skína í sínum uppáhalds leikjum.

Keppt var í fjölbreyttum tölvuleikjum, þar á meðal Fortnite, Valorant, Roblox og Minecraft. Þar vakti Fortnite-keppnin sérstaka athygli – bæði fyrir spennandi leikstíl og glæsilega frammistöðu nokkurra einstakra leikmanna.

Sigurvegarar fengu bikara merkta KIA Íslandsmeistaramóti ungmenna
Sigurvegarar fengu bikara merkta KIA Íslandsmeistaramóti ungmenna Ljós­mynd/​rafit­hrott­ir.is

Þorlákur og Bragi skáru sig úr í Fortnite

Sigurvegarar Fortnite:

  • Fortnite Solo – yngri flokkur: Þorlákur Gottskálk (FH)

  • Fortnite DUO – yngri flokkur: Þorlákur Gottskálk (FH) & Brimir Leó (FH)

  • Fortnite Solo – eldri flokkur: Bragi Sigurður (RAFÍK)

  • Fortnite DUO – eldri flokkur: Bragi Sigurður (RAFÍK) & Alexander Liljar (RAFÍK)

Alexander Liljar og Bragi Sigurður
Alexander Liljar og Bragi Sigurður Ljós­mynd/​rafit­hrott­ir.is

Litlu mátti muna í einstaklingskeppni Fortnite í eldri flokki þar sem Bragi Sigurður og Alexander Liljar voru að keppa um fyrsta sætið, en það fór þannig að Bragi endaði með 132 stig gegn 127 stigum Alexanders.

Aðstaðan í Arena var til fyrirmyndar, og mikil áhersla var lögð á jákvæða upplifun keppenda, jafnt í keppni sem og félagslegri samveru.​ Þrátt fyrir að þetta væri fyrsta mótið sinnar tegundar tókst það með glæsibrag og er nú þegar farið að rjúka upp spennan fyrir næsta viðburð.

Áhorfendur fylgdust spennt með
Áhorfendur fylgdust spennt með Ljós­mynd/​rafit­hrott­ir.is

„Þetta var algjörlega frábær helgi – og við erum virkilega spennt að fylgjast með þessum krökkum vaxa í rafíþróttum á næstu árum,“ sagði Lars Davíð, markaðsstjóri RÍSÍ eftir mótið.

Verðlaun voru veitt fyrir efstu 3 sætin í hverjum flokki
Verðlaun voru veitt fyrir efstu 3 sætin í hverjum flokki Ljós­mynd/​rafit­hrott­ir.is
Ljós­mynd/​rafit­hrott­ir.is
Ljós­mynd/​rafit­hrott­ir.is
Ljós­mynd/​rafit­hrott­ir.is
Ljós­mynd/​rafit­hrott­ir.is
Ljós­mynd/​rafit­hrott­ir.is
Ljós­mynd/​rafit­hrott­ir.is
Ljós­mynd/​rafit­hrott­ir.is
Ljós­mynd/​rafit­hrott­ir.is
Ljós­mynd/​rafit­hrott­ir.is
Ljós­mynd/​rafit­hrott­ir.is
Ljós­mynd/​rafit­hrott­ir.is
Ljós­mynd/​rafit­hrott­ir.is
Ljós­mynd/​rafit­hrott­ir.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert