Kristján Einar keppti í Spa

Kristján Einar í Spa. Að baki honum Rauðavatnsbeygjan fræga (Eau …
Kristján Einar í Spa. Að baki honum Rauðavatnsbeygjan fræga (Eau Rouge).

Kristján Einar Kristjánsson sætti mótlæti er hann keppti í dag í formúlu-3 í hinni frægu Spa Francorchamps braut í Belgíu. Ekið var aftan á hann í seinni kappakstrinum svo hann féll að lokum úr leik.

Framfjöðrunin í bíl Kristjáns Einars skemmdist er hann fékk bíl á sig í fyrstu beygju hringsins. Bíllinn hélst þó á brautinni við samstuðið og Kristján streittist við að halda áfram.

Á fjórða hring festist hins vegar stýrið endanlega og hann flaug útaf. Bíllinn staðnæmdist á grasbala og sakaði hvorki bílstjóra eða bíl frekar.

„Þetta voru hrikaleg vonbrigði og erfitt að sætta sig við að ákeyrslu í sömu beygju á fyrsta hring í báðum keppnunum,“ segir Kristján Einar á heimasíðu sinni.

„Á þriðja hring missti ég bílinn út af í Pouhon u-beygjunni en kom honum aftur inn á brautina. Nokkrum sekúndum seinna brotnaði fjöðrunin endanlega þegar ég bremsaði fyrir Busstop s-beygjurnar. Stýrið festist og ég ók beint út úr braut," sagði Kristján Einar ennfremur.

Fyrsta beygjan reyndist mörgum dýrkeypt og samtals sjö bílar sem luku ekki keppni vegna óhappa þar.

Í fyrra mótinu í dag varð Kristján Einar sjötti í landsflokki. Hann átti góða ræsingu, tók fram úr sex bílum á fyrstu metrunum.

Í beygju á fyrsta hring var hins vegar ekið aftan á hann, bíllinn snérist út úr braut og dýrmætar sekúndur töpuðist við að koma honum aftur inn á brautina.

„Eftir þetta náði ég aldrei að minnka bilið í næsta bíl nóg til að fá kjölsog sem er eina leiðin til að taka framúr á beinu köflunum hér,“ sagði Kristján Einar.

Hann reyndi þó til þrautar og setti í leiðinni langhraðasta tíma landsflokksbílanna á einu af þremur tímasvæðum brautarinnar. Og var raunar næst fljótastur allra bíla úr báðum flokkum á þeim kafla, mældist á 246,8 km hraða.

Viktor Þór Jensen var skráður til leiks í mótinu en kom ekki á vettvang. Lið hans mætti þó til keppni og tefldi fram þýskum ökuþór í landsflokki sem ekki hefur keppt í undanförnum sex mótum.

Kristján Einar þýtur upp Rauðavatnsbeygjuna frægu í Spa (Eau Rouge).
Kristján Einar þýtur upp Rauðavatnsbeygjuna frægu í Spa (Eau Rouge).
Áhorfendastúkur Spa voru þéttsetnar í dag.
Áhorfendastúkur Spa voru þéttsetnar í dag.
Kristján ræðir taktík við aðstoðarmann við bíl sinn.
Kristján ræðir taktík við aðstoðarmann við bíl sinn.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert