Kvyat færist aftur á bak

Daniil Kvyat á Toro Rosso á æfingum í Monza um …
Daniil Kvyat á Toro Rosso á æfingum í Monza um helgina. mbl.is/afp

Daniil Kvyat hjá Toro Rosso er fyrsti ökumaðurinn sem sætir sérlegri refsingu vegna vélabrúks á vertíðinni. Skipt var um íhlut í vél í bílnum hans í Monza.

Þar með er Kvyat að nota sjöttu vélaríhlutinn á vertíðinni en heimilt er að nota fimm refsilaust.

Því bíður hans 10 sæta afturfærsla á rásmarkinu í Monza á morgun. Verði hann það aftarlega í tímatökunni að hann nýti ekki refsisætin 10  tekur hann afganginn út í næsta móti, í Singapúr.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert