Alonso sleppir síðustu æfingalotunni

Fernando Alonso kveður lækna og starfsfólk spítalans í Barcelona.
Fernando Alonso kveður lækna og starfsfólk spítalans í Barcelona. mbl.is/epa

Fernando Alonso hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi í Barcelona eftir að hafa dvalist þar undir læknishendi og til eftirlits í fjóra sólarhringa frá æfingaslysi í Katalóníu sl. sunnudag.

Lögðu læknar til við við útskriftina að Alonso taki ekki þátt í lokalotu bílprófana formúluliðanna sem hófst í Barcelona í dag. Leysir danski varamaðurinn Kevin Magnussen hann af.

Að sögn talsmanns McLaren hélt Alonso af spítalanum til foreldrahúsa á Spáni þar sem hann mun hvílast næstu daga.

Móðir Alonso, Ana Diaz (t.h.), og unnusta hans Lara Alvarez …
Móðir Alonso, Ana Diaz (t.h.), og unnusta hans Lara Alvarez sóttu ökumanninn á spítalann í Barcelona og fylgdu honum heim. mbl.is/epa
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert