Sauber frumsýnir

Sauber frumsýndi 2016-bíl sinn á netinu í dag en sem undanfarin ár verður hann knúinn vél frá Ferrari. Honum verður frumekið við bílprófanir í Barcelona á morgun.

Við bílprófanir þar í síðustu viku tefldi Sauber fram ögn breyttum bíl frá í fyrra.

„Við viljum auðljóslega bæta okkur frá í fyrra,“ sagði liðsstjórinn Monisha Kaltenborn í tilefni frumsýningarinnar. Þá varð Sauber í áttunda sæti í keppni liðanna tíu. Nú hefur ellefta liðið  bæst við.

„Vitaskuld viljum við hreppa ákveðið sæti en til að byrja með verður mikilvægast fyrir okkur að tryggja okkur í sessi í miðhópi liðanna. Fyrst eftir það munum við einblína á tiltekið sæti,“ bætir Kaltenborn við.

Toro Rosso er eina liðið sem enn á eftir að sýna 2016-bíl sinn. Það hyggst liðið gera í fyrramálið, rétt fyrir upphaf æfingaakstursins í Barcelona.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert