Haas sektað fyrir laust hjól

Vinstra rfamhjólið losnaði af Haas-bíl Gutierrez í Sepang.
Vinstra rfamhjólið losnaði af Haas-bíl Gutierrez í Sepang.

Haasliðið hefur verið sektað um 5.000 evrur - um 645 þúsund krónur - fyrir að vinstra framhjólið losnaði frá bíl Esteban Gutierrez á 41. hring af 56 í Sepang í dag.

Atvik sem þetta eru afar sjaldgæf í keppni í formúlu-1 en ljóst þykir að felgan hafi ekki verið fest nægilega vel er Gutierrez stoppaði til dekkjaskipta er sýndaröryggisbíll var í brautinni í framhaldi af brottfalli Lewis Hamiltons.

Hvorki liðsmenn Haas né Gutierrez áttuðu sig á hvað gerst hafði. Í raun hafði búnaður sem festir felguna virkað rétt en bilun í íhlut leitt til þess að dekkið losnaði af. Komust því eftirlitsdómarar kappaksturins að þeirri niðurstöðu að bíl Gutierrez hafi verið hleypt óöruggum út í brautina. Það varði við öryggiskröfur formúlunnar og því hafi refsing verið óumflýjanleg. Hún á þó bara við um liðið, ekki ökumanninn.



Esteban Gutierrez á Haasaa-bílnum í Sepang.
Esteban Gutierrez á Haasaa-bílnum í Sepang.
Esteban Gutierrez á ferð í Sepang.
Esteban Gutierrez á ferð í Sepang.
Gutierrez við hlið Bottas í fyrsta beygjuhlekknum í Sepang.
Gutierrez við hlið Bottas í fyrsta beygjuhlekknum í Sepang.
Romain Grosjean (framar) varðist Fernando Alonso hjá McLaren á fyrstu …
Romain Grosjean (framar) varðist Fernando Alonso hjá McLaren á fyrstu hringjunum í Sepang, eða þar til bremsur gáfu sig með þeim afleiðingum að Haasbíllinn flaug út í malargryfju og sat þar fastur. AFP
Romain Grosjean hjá Haas á ferð í Sepang í Malasíu …
Romain Grosjean hjá Haas á ferð í Sepang í Malasíu en hann féll úr leik vegna bremsubilunar á sjöunda hring. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert