Bottas og Massa fremstir í flokki

Valtteri Bottas hjá Mercedes ók á besta tíma dagsins við reynsluakstur formúluliðanna í Barcelona í dag. Í gær ók Felipe Massa hjá Williams hraðast. 

Þriðja besta hringinn átti Kimi Räikkönen hjá Ferrari en hann var sekúndu lengur í förum en Massa. Í öðru sæti í gær varð Daniel Ricciardo hjá Red Bull og Sebastian Vettel hjá Ferrari.

Í gær var í nógu að snúast fyrir Massa því hann ók 168 hringi eða um 800 kílómetra. Rólegheitin voru meiri í dag, ef svo mætti orða það en þá ók Massa 63 hringi.

Alls voru 14 ökumenn við akstur í Barcelona en hjá Mercedes, Haas, Sauber og Renault skiptust ökumenn á að manna liðsbílinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert