70. ráspóll Lewis Hamiltons

Lewis Hamilton á Mercedes var í þessu að vinna ráspól Malasíukappakstursins eftir harða og tvísýna keppni við Kimi Räikkönen á Ferrari. Liðsfélagi hans Sebastian Vettel hefur keppni af 20. rásstað vegna vélarbilunar í byrjun tímatökunnar.

Á þeim Hamilton og Räikkönen munaði að lokum aðeins 46 þúsundustu úr sekúndu. 

Max  Verstappen á Red Bull varð þriðji en hann skaust upp fyrir liðsfélaga sinn Daniel Ricciardo í allra síðustu tímatilraun sinni.

Í sætum fimm til tíu - í þessari röð - urðu Valtteri  Bottas á Mercedes, Esteban Ocon á Force India, Stoffel Vandoorne á McLaren, Nico Hülkenberg á Renault, Sergio Perez á Force India og Fernando Alonso á McLaren.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert