Bottas fór hraðast

Valtteri Bottas íbygginn í Mexíkó.
Valtteri Bottas íbygginn í Mexíkó. AFP

Valtteri Bottas á Mercedes ók hraðast á fyrstu æfingu keppnishelgarinnar í Mexíkó og annar varð liðsfélagi hans Lewis Hamilton.

Þriðja besta tímann setti Max Verstappen á Red Bull, sem varð aðeins 26 þúsundustu úr sekúndu fljótari en liðsfélaginn Daniel Ricciardo.

Í sætum fimm til tíu - í þessari röð - urðu Sebastian Vettel og  Kimi Räikkönen á Ferrari, Sergio Perez á Force India, Fernando Alonso á McLaren, Felipe Massa ás Williams og Nico Hülkenberg á Renault.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert