Vettel fljótastur

Sebastian Vettel á Ferrari ók hraðast á fyrstu æfingu síðustu keppnishelgar formúlu-1 í Abu Dhabi í dag. 

Lewis Hamilton á Mercedes var 01, sekúndu lengur með hringinn og Max Verstappen á Red Bull aðeins 28 þúsundustu úr sekúndu á eftir Hamilton.

Besti hringur Vettels mældist 1:39,006 mínútur en Hamiltons 1:39,126 og Verstappens 1:39,154 mín.

Í sætum fjögur til tíu - í þessari röð - urðu Kimi Räikkönen á Ferrari, Valtteri Bottas á Mercedes, Sergio Perez á Force India, Fernando Alonso og Stoffel Vandoorne á McLaren, Felipe Massa á Williams og Daniel Ricciardo á Red Bull sem var rúmri sekúndu lengur í förum en Vettel.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert