Lewis Hamilton á Mercedes setti aftur besta tímann á seinni æfingu dagsins í Sjanghæ en var nú aðeins sjö þúsundustu úr sekúndu fljótari með hringinn en Kimi Räikkonen á Ferrari. Á þeim munaði 0,4 sek. á fyrri æfingunni.
Eins og á þeirri fyrri ók Valtteri Bottas þriðja besta hringinn á seinni æfingunni. Sótti hann mjög á Hamilton og var aðeins 33 þúsundustu úr sekúndu frá brautartíma hans. Og innan við 0,1 sekúnda skildi fyrstu fjóra menn af en Sebastian Vettel á Ferrari setti fjórða besta tímann.
Í sætum fimm til tíu á lista yfir hröðustu hringi æfingarinnar urðu - í þessari röð - Max Verstappen á Red Bull, Nico Hülkenberg á Renault, Kevin Magnussen á Haas, Carlo Sainz á Renault, Daniel Ricciardo á Red Bull og Fernando Alonso á McLaren. Á tíma Alonso og Hamilton munaði 1,1, sekúndu.
Aðra æfinguna í röð rak Lance Stroll á Williams restina. Var hann 3,6 sekúndum lengur með hringinn en Hamilton. Gefur það kannski ekki rétta mynd af hversu slakur Williamsbíllinn óneitanlega er í ár því liðsfélagi hans Sergej Sírotkín stóð sig betur og var 1,8 sekúndum á eftir Hamilton.