Bottas greip ráspólinn

Finninn Valtteri Bottas hjá Mercedes var í þessu að vinna ráspól austurríska kappakstursins eftir eitilharða rimmu við landa sinn Kimi Räikkönen á Ferrari og liðsfélaga sinn Lewis Hamilton.

Keppnin um ráspólinn var afar jöfn og tvísýn og minnstu mistök í gegnum beygju gátu verið dýrkeypt. Hamilton var hraðskreiðastur í fyrstu tveimur lotunum en í þeirri þriðju og síðustu lét Bottas heldur betur til sín taka og ók hraðast. 

Räikkönen var að lokinni fyrri tímatilrauninni í öðru sæti og Hamilton í því þriðja. Romain Grosjean á Haas var þá óvænt fjórði og Sebastian Vettel á Ferrari aðeins sjötti.

Í allra síðustu atlögu ökumanna að ráspólnum bætti Bottas tíma sinn og hélt pólnum þrátt fyrir harða sókn Hamiltons sem endaði í öðru sæti. Í blálokin náði Vettel loks góðum hring og ók upp í þriðja sæti og Räikkönen féll niður í það fjórða.

Max Verstappen á Red Bull tók sömuleiðis stökk í lokatilrauninni og hefur keppni á morgun í fimmta sæti. Grosjean hafnaði í sjötta sæti, Daniel Ricciardo á Red Bull í sjöunda, Kevin Magnussen á Haas í áttunda, Carlos Sainz á Renault í níunda og liðsfélagi hans Nico Hülkenberg í því tíunda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert