Hamilton fljótastur í Silverstone

Mercedes átti tvo hraðskreiðustu bílana á fyrstu æfingu keppnishelgar breska kappakstursins í Silverstone. Lewis Hamilton var tæplega 0,4 sekúndum fljótari en Valtter Bottas.

Bottas var með nýja vél í sínum bíl en Mercedesmenn voru efins um að vélin úr austurríska kappakstrinum myndi halda út. Því var skipt um í öryggisskyni en þar sem aðeins var búið að nota fyrrnefnda vél tvisvar má Bottas búast við að þurfa flytjast aftur eftir rásmarkinu vegna vélarskipanna.  

Sebastian Vettel á Ferrari var 0,1 sekúndu lengur í förum en Bottas, en í sætum fjögur til tíu urðu Daniel Ricciardo á Red Bull, Kimi Räikkönen á Ferrari , Max Verstappen á Red Bull, Romain Grosjean á Haas, Sergio Perez og Esteban Ocon á Force India og tíunda besta hringinn átti óvænt Lance Stroll hjá Williams.

Verstappen varð fyrir gírkassabilun er um fimm mínútur voru eftir æfingarinnar. Grosjean laskaði bíl sinn með hörðum skell á öryggisvegg við Abbey-beygjuna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert