Hamilton að lokum fljótastur

Lewis Hamilton á ferð í Silverstone í dag.
Lewis Hamilton á ferð í Silverstone í dag. AFP

Kimi Räikkönen á Ferrari og Lewis Hamilton á Mercedes skiptust á að sitja í efsta sæti lista yfir hröðustu hringi lokaæfingarinnar í Silverstone. Räikkönen velti keppinautnum hvað eftir annað úr efsta sætinu en Hamilton átti að lokum síðasta orðið og fór hraðast.

Keppnin um fjögur efstu sætin stóð á milli Ferrari og Mercedes, engir aðrir blönduðu sér þar í. Valtteri Bottas á Mercedes skaust í lokin upp fyrir Sebastian Vettel, sem átti fórða besta hringinn.

Räikkönen var aðeins 93 þúsundustu úr sekúndu lengur með hringinn en Hamilton. Bilið í hina var öllu meira; Bottas var 0,6 sekúndum á eftir Hamilton og Vettel 1,1 sekúndu.

Í sætum fimm til tíu - í þessari röð - urðu Max Verstappen og Daniel Ricciardo á Red Bull, Charles Leclerc á Sauber, Kevin Magnussen og Romain Grosjean á Haas og Marcus Ericsson á Sauber. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert