Færir Williams peninga

Robert Kubica gefur eiginhandaráritun.
Robert Kubica gefur eiginhandaráritun. mbl.is/afp

Með ráðningu Roberts Kubica sem keppnisökumanns áskotnaðist Williamsliðinu vænn styrktarsamningur við eitt helsta olíufélag Póllands, PKN Orlen. 

Williams ákvað á dögunum að ráða Kubica hinn pólska á kostnað Rússans Sergej Sírotkíns sem ökumann 2019. Kubica snýr því aftur til keppni en ferill hans í formúlu-1 og öðrum íþróttum virtist úr sögunni í alvarlegu slysi í ralli í ársbyrjun 2011. Áður hafði hann keppti fyrir Sauber og Renault.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert