Ferrari með nýja trjónu

Ný trjóna keppnisbíla Ferrari í bílskúr liðsis í Singapúr.
Ný trjóna keppnisbíla Ferrari í bílskúr liðsis í Singapúr. AFP

Ferrari mætir til leiks í Singapúr kappakstrinum með nýja trjónu á keppnisbílum sínum.

Eftir góða sigra í síðustu tveimur mótum, hinum hröðu brautum í Spa og Monza,  er ekki við öðru búist en að önnur lið muni gera tilkall til efsta þrepsins á verðlaunapallinum í Singapúr á sunnudag, en þar eru brautareiginleikar ólíkir þeim tveimur fyrrnefndu.

Nýja væng Ferrari er ætlað að bæta getu bílsins í hægum beygjum brautarinnar í Singapúr, en slíkar beygjur voru akkilesarhæll keppnisfáks liðsins allt árið í fyrra. Með útfærslu þess þykir sem Ferrari hafi sótt í velheppnaðar útfærslur á trjónum bíla bæði McLaren, Alfa Romeo og Mercedes.
Keppnisbíll Sebastians Vettel á leið í skoðun í Singpúr með …
Keppnisbíll Sebastians Vettel á leið í skoðun í Singpúr með nýju trjónuna áfesta. AFP
Keppnisbíll Sebastians Vettel á leið í skoðun í Singpúr með …
Keppnisbíll Sebastians Vettel á leið í skoðun í Singpúr með nýju trjónuna áfesta. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert