Vettel fljótastur frá morgni til kvölds

Sebastian Vettel var fljótastur í förum í Barcelona í daga. …
Sebastian Vettel var fljótastur í förum í Barcelona í daga. Svo hratt fór hann í þessari beygju að myndin fór úr fókus. AFP

Sebastian Vettel á Ferrari ók manna hraðast á næstsíðasta degi reynsluaksturs formúluliðanna í Barcelona. Næstir honum komu Pierre Gasly á Alpha Tauri og Lance Stroll á Racing Point.

Þegar upp var staðið undir kvöld var tími á besta hring Vettels frá því fyrir hádegi sá besti yfir daginn. Hann olli rauðu flaggi í morgun er hann snarsnerist útúr brautinni í fimmtu beygju og hafnaði úti í malargryfju.

Tími Vettels mældist 1:16,841 mínútur eða 0,1 sekúndubroti betri en besti tími æfinganna í þessari viku og þeirri síðustu. Þann tíma setti Robert Kubica á Alfa Romeo í gær.

Vettel var ekki sá eini sem lenti í vandræðum í dag. Vandræði með olíuþrýsting eftir hádegi takmarkaði  æfingar Mercedes.  Beið Lewis Hamilton í rúman klukkutíma sem tók að komast fyrir bilunina. Olli hann rauðu  flaggi líka er hann stoppaði í miðri braut.

Nicholas Latifi hjá Williams setti fjórða besta tíma dagsins og ók fleiri hringi en nokkur annar ökumaður, eða 157.

Lando Norris á McLaren varð fimmti á lista yfir hröðustu hringi dagsins og Max Verstappen sjötti en hann vék eftir hádegi fyrir liðsfélaga sínum Alexander Albon.

Verstappen olli rauðu flaggi í morgun er hann flaug út í malagryfjuna við fimmtu beygju eins og Vettel og festist þar.

Valtteri Bottas á Mercedes og Esteban Ocon á Renault óku aðeins í morgun en þeir höfnuðu í sjöunda og áttunda sæti listans fyrrnefnda. Kevin Magnussen á Haas varð í níunda sæti og Albon í tíunda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert