Ráspólarnir orðnir 98

Lewis Hamilton í Barein.
Lewis Hamilton í Barein. AFP

Lewis Hailton var að vinna sinn 98. ráspól á ferlinum í formúlu-1 og hefur því Bareinkappaksturinn fremstur á morgun.

Annar varð liðsfélagi hans hjá Mercedes, Valtteri Bottas, og þriðji Max Verstappen á Red Bull.

Með þessari niðurstöðu á Hamilton möguleika á að krækja í sinn hundraðasta ráspól  í lokamóti ársins, en tvömót eru eftir vertíðarinnar.

Í sætum fjögur til tíu urðu - í þessari röð - Alex Albon á Red Bull, Sergio Perez á Racing Point, Daniel Ricciardo og Esteban Ocon á Renault, Pierre Gasly á Alphatauri, Lando Norris á McLaren og Daniil Kvyat á Alphatauri.

Ferrari náði ekki í þriðju lotu tímatökunnar en Sebastian Vettel varð ellefti og Charles Leclerc tólfti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert