Max sá við Mercedes

Max Verstappen fagnar sigrinum í Frakklandi.
Max Verstappen fagnar sigrinum í Frakklandi. AFP

Max Veðstappen á Red Bull var í þessu að vinna franska kappaksturinn í Le Castellet í spennandi herfræðilegu uppgjöri við Lewis Hamilton á Mercedes. Vann Verstappen það með framúrakstri á næstsíðasta hring.

Þetta er þriðji mótssigur Verstappen á árinu, hina fyrri vann hann í Azerbajan og Mónakó.

Í þriðja sæti varð Sergei Perez á Red Bull sem vann sig fram úr Valtteri Bottas á Mercedes á lokahringjunum. 

Í sætum fimm til 10 urðu sem hér segir: Lando Norris á McLaren, Daniel Ricciardo á McLaren  Pierre Gasly á AlphaTauri, Fernando Alonso á Alpine, Sebastian Vettel á Aston Martiin og Lance Stroll á Aston Martin. 

Á grundvelli úrslita dagsins hefur Verstappen 12 stiga forystu á Hamilton í keppninni um heimsmeistaratitil ökumanna, með 131 stiga gegn 119. Perez er þriðjji með 84 sig, Lando Norris á McLaren fjórði með 76 stig, fimmti er Valtteri Bottas með 59 sig, sjötti Charles Leclerc á Ferrari með52 og sjöundi með 42 stig er Carlos Sainz á Ferrari. Sextán af 20  ökumönnum hafa klárað mót í stigasæti.

Næstu tvær helgar verður keppt í Spielberg í Austurríki.

Max Verstappen að draga Lewis Hamilton uppi í franska kappakstrinum.
Max Verstappen að draga Lewis Hamilton uppi í franska kappakstrinum. AFP
Liðsmenn Red Bull fagna Max Verstappen er hann ekur yfir …
Liðsmenn Red Bull fagna Max Verstappen er hann ekur yfir marklínuna sem siguregari í franska kappakstrinum Circuit Paul-Ricard í Le Castellet í Suður-Frakklandi. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert