Mexíkóinn skákaði Ferrari-mönnum

Serio Pérez fagnar ráspólnum í kvöld.
Serio Pérez fagnar ráspólnum í kvöld. AFP/Andrej Isakovic

Mexíkóinn Sergio Pérez tryggði sér ráspólinn fyrir Sádi-Arabíu kappaksturinn í Formúlu 1 með því að sigra í tímatökunni í kvöld. Pérez ekur fyrir Red Bull og verður á sínum fyrsta ráspól í keppninni á morgun. 

Ferrari-mennirnir Charles Leclerc og Carlos Sainz urðu í öðru og þriðja sæti. Liðsfélagi Pérez, heimsmeistarinn Max Verstappen, varð fjórði.

Lewis Hamilton átti eina verstu tímatöku ferilsins því hann féll úr leik í fyrsta hluta tímatökunnar og ræs af stað í 16. sæti. Liðsfélagi hans hjá Mercedes, George Russell, varð sjötti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert