Schumacher með sjúkraflugi á spítala

Mick Schumacher er fluttur á spítala.
Mick Schumacher er fluttur á spítala. AFP/Andrej Isakovic

Þýski ökuþórinn Mick Schumacher var fluttur á spítala í sjúkraþyrlu eftir harkalegan árekstur í tímatökunni fyrir Sádi-Arabíu kappaksturinn í Formúlu 1 í kvöld.

Schumacher missti stjórn á Haas-bíl sínum á 270 kílómetra hraða og klessti á öryggisvegg. Þjóðverjinn var áfram í bílnum eftir slysið, en var með meðvitund og gat tjáð sig við lækna á svæðinu.

Mick Schumacher er sonur Michaels Schumachers, eins besta ökuþórs allra tíma.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert