Fjórfaldi heimsmeistarinn snýr aftur

Sebastian Vettel er búinn að jafna sig á kórónuveirunni.
Sebastian Vettel er búinn að jafna sig á kórónuveirunni. AFP/Giuseppe Cacace

Þýski ökuþórinn Sebastian Vettel hefur jafnað sig á kórónuveirunni og mun hann keyra fyrir Aston Martin í Ástralíukappakstrinum í Formúlu 1 um þarnæstu helgi.

Vettel missti af tveimur fyrstu keppnum tímabilsins í Barein og Sádi-Arabíu vegna veirunnar en landi hans Nico Hulkenberg leysti Vettel af hólmi í keppnunum tveimur.

Vettel, sem hefur fjórum sinnum orðið heimsmeistari með Red Bull, hefur þrívegis unnið Ástralíukappaksturinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert