Alex Albon framlengir samning sinn við Williams

Alex Albon skrifaðiundir nýjan samning.
Alex Albon skrifaðiundir nýjan samning. Ljósmynd/Williams

 Alex Albon hefur framlengt samning sinn við Williams í formúlu 1 að lámarki til 2023 en hann hefur skrifað undir margra ára samning við liðið.

Það er ekki tekið fram hve lengi samningurinn gildir en Williams segir „okkar 23 verður hjá okkur 2023 og lengur í tilkynningu liðsins á Twitter.

„Liðið er að leggja hart að sér til að komast lengra og ég er fullur af metnað til þess að halda áfram á þessu ferðalagi og halda áfram að þróa liðið saman," sagði Alex Albon um samning sinn við Williams.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert