Snýr aftur til Red Bull

Daniel Ricciardo er kominn aftur til Red Bull.
Daniel Ricciardo er kominn aftur til Red Bull. AFP/Ben Stansall

Daniel Ricciardo hefur samið við Red Bull-liðið um að vera þriðji ökumaður þess í Formúlu-1 á næsta tímabili.

Hinn ástralski Ricciardo var í leit að nýju liði eftir að samningi hans við McLaren liðið var rift eftir tvö tímabil hjá liðinu.

Hann var ökumaður hjá Red Bull á árunum 2014 til 2018 og vann þar sjö kappakstra.

Nú er Ricciardo, sem er 33 ára gamall, snúinn aftur til liðsins og verður heimsmeistaranum Max Verstappen og Sergio Pérez til halds og trausts.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert