Steingrímur með ÍBV í Grindavík


STEINGRÍMUR Jóhannesson, markahæsti leikmaður efstu deildar karla í knattspyrnu, fór með Íslands- og bikarmeisturum ÍBV með Herjólfi frá Eyjum í gær vegna leiksins við Grindavík í 16. umferð Íslandsmótsins í dag og bendir allt til þess að hann verði með. "Hann er í hópnum en skömmu fyrir leik kemur í ljós hvort hann verður í byrjunarliðinu," sagði Bjarni Jóhannsson, þjálfari Eyjamanna, við Morgunblaðið.
 Steingrímur meiddist í bikarúrslitaleiknum og var ekki með Eyjamönnum þegar þeir unnu Fram 2:0 í 15. umferð sl. þriðjudagskvöld. Hins vegar hefur hann æft tvisvar með liðinu síðan og auk þess mætt á eina séræfingu. "Þetta lítur vel út og við vonum það besta," sagði Bjarni.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert