Steindautt jafntefli í Laugardalnum

Framarar tryggðu áframhaldandi sæti sitt í Landssímadeildinni er liðið gerði markalaust jafntefli við ÍR-inga í Laugardalnum í dag. Leikurinn var lítið fyrir augað og kannski að leikmenn hafi verið að launa áhorfendum aðsóknina en hún var mjög dræm í leiknum í dag.

Framararnir voru heldur sterkari í leiknum en fengu þó engin umtalsverð marktækifæri og í þau einu skipti sem eitthvað hvað að varði Ólafur Þ. Gunnarsson hinn snjalli markvörður ÍR-inga. ÍR sótti heldur í sig veðrið er á síðari hálfleik leið en hvorugt lið fékk góð færi og sættust liðin því á skiptan hlut. Byrjunarliðin:
Fram: Ólafur Pétursson, Ágúst Ólafsson, Ásgeir Halldórsson, Þórir Áskelsson, Freyr Karlsson, Jón Sveinsson, Arnljótur Davíðsson, Þorvaldur Ásgeirsson, Baldur Bragason, Kristófer Sigurgeirsson, Ásmundur Arnarson.
ÍR: Ólafur Þ. Gunnarsson, Kjartan Kjartansson, Guðmundur Guðmundsson, Kristján Halldórsson, Garðar Newman, Joe Tortolano, Geir Brynjólfsson, Bjarni Gaukur Sigurðsson, Chris Jackson, Sævar Þ. Gíslason, Kristján Brooks. Gul spjöld:
Fram: Ólafur Pétursson á 31. mínútu.
ÍR: Geir Brynjólfsson á 26. mínútu. Dómari:
Gísli Jóhannsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert