Jóhann Þórhallsson í þriggja leikja bann

Jóhann Þórhallsson, knattspyrnumaður úr Þór á Akureyri, var í dag úrskurðaður í þriggja leikja bann af aganefnd KSÍ. Jóhann gaf leikmanni Víkings, Sölva Ottesen, olnbogaskot í leik liðanna á laugardaginn með þeim afleiðingum að Sölvi kinnbeinsbrotnaði. Þá voru tveir KR-ingar, Veigar Páll Gunnarsson og Kristján Örn Sigurðsson, úrskurðaðir í eins leiks bann, sem og KA-mennirnir Þorvaldur S. Guðbjörnsson og Steinn Viðar Gunnarsson og Skagamaðurinn Stefán Þór Þórðarson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert