Byrjunarlið 21-árs landsliðsins tilbúið

Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari 21-árs landsliðsins í knattspyrnu, tilkynnti í morgun byrjunarliðið fyrir leikinn gegn Möltu sem hefst í dag klukkan 18 að íslenskum tíma. Leikið er á þjóðarleikvangi Möltu, Ta'Qali, en A-landslið þjóðanna mætast þar á morgun.

Tvær breytingar eru á liðinu frá leikjunum við Ungverjaland og Búlgaríu í síðasta mánuði en þeir Hannes Þ. Sigurðsson og Gunnar Þór Gunnarsson taka út leikbann í dag. Liðið er þannig skipað:

Markvörður: Bjarni Halldórsson.

Varnarmenn: Steinþór Gíslason, Sölvi Geir Ottesen, Sverrir Garðarsson, Henning Jónasson.

Miðjumenn: Viktor Bjarki Arnarsson, Ólafur Ingi Skúlason, Davíð Þór Viðarsson, Emil Hallfreðsson.

Framherjar: Hörður Sveinsson, Pétur Ó. Sigurðsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert