Sölvi Geir í liði vikunnar

Sölvi Geir Ottesen byrjar vel með danska liðinu SönderjyskE.
Sölvi Geir Ottesen byrjar vel með danska liðinu SönderjyskE. Scanpix

Frammistaða Sölva Geirs Ottesen með danska knattspyrnuliðinu SönderjyskE gegn FC Köbenhavn um helgina þótti það glæsileg að Sölvi var valinn maður leiksins.

Leiknum lyktaði með 1:1 jafntefli og þótti varnarlína SönderjyskE með Sölva Geir fremstan í flokki standa vaktina vel. Úrslitin voru óvænt en SönderjyskE er nýliði í deildinni. Í kjölfarið valdi svo Ekstra Bladet Sölva Geir í lið umferðarinnar fyrir frækna frammistöðu.

„Þetta var fínn leikur hjá okkur og ég er afskaplega ánægður með þetta. Mér tókst að halda brasilískum framherja þeirra í skefjum sem gaf mér örugglega einhver aukastig,“ sagði Sölvi við Morgunblaðið. thorkell@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert