Dóra María íþróttamaður Vals 2009

Dóra María Lárusdóttir í leik með íslenska landsliðinu.
Dóra María Lárusdóttir í leik með íslenska landsliðinu. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Íþróttamaður Vals var útnefndur í dag í 18. sinn og að þessu sinni varð knattspyrnukonan Dóra María Lárusdóttir fyrir valinu. Dóra hefur verið algjör lykilmanneskja undanfarin ár í kvennaliði Vals, sem varð Íslands- og bikarmeistari á árinu sem er að líða.

Á vef Vals segir um Dóru Maríu; ,,Dóra  er frábær fyrirmynd innan og utan vallar, lykilleikmaður í frábæru kvennalandsliði Íslands og hefur spilað allan sinn feril með Val. “

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert