Tíu tilnefndir en einn tekur við styttunni

Ólafur Stefánsson var kjörinn íþróttamaður ársins í fyrra og hér …
Ólafur Stefánsson var kjörinn íþróttamaður ársins í fyrra og hér tekur hann við styttunni glæsilegu úr hendi Þorsteins Gunnarssonar fyrrum formanns SÍ. Ómar Óskarsson

Kjöri íþróttamanns ársins 2009 verður lýst í kvöld í hófi á Grand hóteli Reykjavík. Það eru Samtök íþróttafréttamanna, SÍ, sem kjósa íþróttamann ársins og er þetta í 54. sinn sem SÍ stendur fyrir því.

Á aðfangadag var upplýst hvaða íþróttamenn höfnuðu í tíu efstu sætunum í kjörinu að þessu sinni en í kvöld kemur í ljós hver hinna tíu hreppir hnossið að þessu sinni. Alls hlutu 30 íþróttamenn atkvæði í kjörinu að þessu sinni sem 19 félagsmenn í SÍ tóku þátt í.

Nöfn þeirra tíu sem til greina koma eru:

Björgvin Páll Gústavsson, handknattleiksmaður hjá Bittenfeld í Þýskalandi og Kadetten í Sviss.

Eiður Smári Guðjohnsen, knattspyrnumaður hjá Barcelona á Spáni og Mónakó í Frakklandi.

Guðjón Valur Sigurðsson, handknattleiksmaður hjá Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi.

Helena Sverrisdóttir, körfuknattleikskona hjá TCU í Bandaríkjunum.

Helga Margrét Þorsteinsdóttir, frjálsíþróttakona úr Ármanni.

Hólmfríður Magnúsdóttir, knattspyrnukona hjá

Kristianstad í Svíþjóð.

Jakob Jóhann Sveinsson, sundmaður úr Ægi.

Jón Arnór Stefánsson, körfuknattleiksmaður hjá KR, Benetton Treviso á Ítalíu og Granada á Spáni.

Ólafur Stefánsson, handknattleiksmaður hjá Ciudad Real á Spáni og Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi.

Þóra Björg Helgadóttir, knattspyrnukona hjá Kolbotn í Noregi. 

Fjórir af þessum íþróttamönnum voru einnig á lista yfir tíu efstu í kjörinu í fyrra, Eiður Smári, Guðjón Valur, Jón Arnór og Ólafur. Sá síðastnefndi varð fyrir valinu á síðasta ári.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert