Bjarni Ólafur íþróttamaður Vals

Bjarni Ólafur ásamt Birni Zoega formanni Vals.
Bjarni Ólafur ásamt Birni Zoega formanni Vals. Ljósmynd/Valur

Knattspyrnumaðurinn Bjarni Ólafur Eiríksson var í dag útnefndur íþróttamaður Vals fyrir árið 2015.

Þetta er í annað sinn sem Bjarni Ólafur verður fyrir valinu en hann var lykilamaður í liði Vals sem varð bikarmeistari í sumar eftir sigur á KR í úrslitaleik.

Bjarni á að baki 233 leiki með Val og hefur í þeim skorað 16 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert