Sölvi skoraði í fyrsta leik

Sölvi Geir á æfingu með Burinham.
Sölvi Geir á æfingu með Burinham. Ljósmynd/Facebook-síða Burinham

Sölvi Geir Ottesen spilaði sinn fyrsta leik með taílenska félaginu Buriram United í dag. Sölvi gerði sér lítið fyrir og skoraði jöfnunarmark liðsins í 2:2 jafntefli gegn Chonburi í A-deildinni þar í landi. Um var að ræða 1. umferð deildarinnar. 

Leikurinn fór þó ekki vel af stað fyrir Sölva og félaga því eftir 43 mínútur var staðan orðin 2:0 fyrir Chonburi.

Brasilíumaðurinn Jaja minnkaði muninn stundarfjórðungi fyrir leikslok, áður en Sölvi skoraði á 78. mínútu og tryggði jafntefli.  

Sölvi hefur undanfarin ár leikið í Kína og varð hann m.a bikarmeistari með Jiangsu Suning árið 2015. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert