Íslandsleikar Special Olympics á sunnudag

Íslandsleikar Special Olympics í knattspyrnu verða sunnudaginn 21. maí.
Íslandsleikar Special Olympics í knattspyrnu verða sunnudaginn 21. maí.

Íslandsleikar Special Olympics í knattspyrnu verða sunnudaginn 21. maí á Þróttarvellinum í Laugardalnum. Leikarnir eru samstarfsverkefni KSÍ, Special Olympics á Íslandi og LETR á Íslandi. 

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna, sér um upphitun sem hefst kl. 12:45. LETR á Íslandi mun aðstoða við að kveikja eld leikanna að loknu kyndilhlaupi en það verður Guðni Bergsson, formaður KSÍ, sem setur leikana kl. 13:00.

Fimm manna lið keppa í tveimur styrkleikaflokkum og karlar og konur keppa saman í liðum. Leiktími er 2x10 mín. hjá styrkleikaflokki 1 og 2x8 mín. hjá styrkleikaflokki 2. 

Kyndilhlaup lögreglu verður fyrir leikana en lögreglan hefur verið í samstarfi við Special Olympics á Íslandi frá 2013.

Mæting í LETR-hlaupið er kl. 11:50 við bifreiðastæði við Gnoðarvog 1 (fyrir aftan Álfheima 72), á ská á móti Glæsibæ. Hlaupið hefst kl. 12:20 en farið verður frá Gnoðarvogi og inn á Engjaveg, þaðan farið á göngustíg sem liggur við Húsdýra- og fjölskyldugarðinn og Grasagarðinn og inn á Þróttarvöllinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert