Zidane búinn að framlengja

Zinedine Zidane.
Zinedine Zidane. AFP

Zinedine Zidane, þjálfari Spánar- og Evrópumeistara Real Madrid, hefur framlengt samning við Madridarliðið.

Samningur Zidane gildir til ársins 2020 en hann tók við þjálfun Real Madrid af Carlo Ancelotti í janúar 2016.

Undir stjórn Zidane hefur Real Madrid unnið átta titla af 10 mögulegum, þar af Spánarmeistaratitilinn einu sinni og Meistaradeildina í tvígang. Illa hefur gengið hjá lærisveinum Frakkans í deildinni á þessu tímabili en Real Madrid er í 4. sæti og 16 stigum á eftir erkifjendunum í Barcelona sem tróna á toppi deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert