Vilja fá gamla Stjörnumanninn

Alexander Scholz.
Alexander Scholz. mbl.is/Andri Yrkill

Belgíska knattspyrnuliðið Club Brugge hefur gert Standard Liege tilboð í Danann Alexander Scholz.

Tilboð Club Brugge hljóðar upp á eina milljón evra sem jafngildir um 125 milljónum íslenskra króna en Standard hefur sett 4,5 milljóna evra verðmiða á Danann.

Scholz er íslenskum knattspyrnuáhugamönnum vel kunnugur eftir að hann spilaði með Stjörnunni tímabilið 2012 við góðan orðstír.

Scholz, sem er 25 ára gamall, fór frá Stjörnunni til belgíska liðsins Lokeren og lék með liðinu til ársins 2015 þegar hann samdi við lið Lokeren.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert