Villarreal nartar í hæla Real Madrid

Pablo Fornals fagnar sigurmarki sínu fyrir Villareal gegn Real Madrid …
Pablo Fornals fagnar sigurmarki sínu fyrir Villareal gegn Real Madrid með Manuel Trigueros Munoz, samherja sínum. AFP

Villarreal minnkaði bilið í Real Madrid í eitt stig í spænsku efstu deildinni í knattspyrnu karla með 1:0-sigri liðsins í leik liðanna á Santiago Bernabéu í dag. Það var Pablo Fornals sem skoraði sigurmark Villarreal þegar skammt var eftir af leiknum.

Liðin sitja í fjórða og fimmta sæti deildarinnar, en Real Madrid hefur 32 stig í fjórða sæti deildarinnar og Villarreal er sæti neðar með 31 stig eftir þennan sigur.

Real Madrid, sem er ríkjandi meistari í Meistaradeild Evrópu, situr í neðsta sætinu sem veitir þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð og Villarreal stefnir hraðbyri að því að hrifsa sætið í Meistaradeildinni af Real Madrid. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert