Frábær viðsnúningur Barcelona

Luis Suárez skoraði tvö mörk í kvöld.
Luis Suárez skoraði tvö mörk í kvöld. AFP

Barcelona vann glæsilegan 4:2-sigur á Real Sociedad í efstu deild Spánar í knattspyrnu í kvöld. Staðan eftir 34 mínútur var 2:0, Sociedad í vil, en þá sögðu Börsungar hingað og ekki lengra.

Willian José kom heimamönnum í Sociedad yfir á 11. mínútu og Juanmi bætti við öðru marki á 34. mínútu. Paulinho lagaði stöðuna á 39. mínútu og var staðan 2:1 í hálfleik. 

Luis Suárez jafnaði leikinn snemma í síðari hálfleik og hann var aftur á ferðinni á 71. mínútu og kom Barcelona í 3:2. Lionel Messi fullkomnaði svo glæsileg umskipti með fjórða markinu á 85. mínútu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert