Atli hættur með Kristianstad

Atli Eðvaldsson.
Atli Eðvaldsson. mbl.is/Golli

Atli Eðvaldsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði og landsliðsþjálfari Íslands, er hættur störfum sem þjálfari sænska knattspyrnuliðsins Kristianstad, samkvæmt frétt Kristianstadsbladet í kvöld.

Sagt er að Serdar Dayat hafi verið ráðinn í hans stað og hafi stjórnað fyrstu æfingu á nýju tímabili í kvöld en leikmenn Kristianstad séu óánægðir með þessa ráðstöfun.

Atli tók við Kristianstad í september þegar liðinu hafði gengið illa í sænsku C-deildinni og það vann fimm af síðustu sjö leikjum sínum á tímabilinu undir hans stjórn.

Uppfært kl. 19.43:

Á vef Kristianstad er þetta staðfest og sagt að haft eftir talsmanni félagsins, Lars Åkeman að skiptar skoðanir hafi verið um störf Atla meðal leikmanna og stjórnarmanna og talið hefði verið að ekki ríkti nægilegt traust til að hann héldi áfram með liðið. 

„Atli kom félaginu til hjálpar þegar með þurfti í haust og þetta var afar erfið ákvörðun," segir Lars Åkeman.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert