Siggi dúlla stýrði víkingaklappinu (myndskeið)

Siggi Dúlla.
Siggi Dúlla. Ljósmynd/youtube

Siggi dúlla, búningastjóri íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, stjórnaði víkingaklappinu heimsfræga eftir sigur Íslands gegn Indónesíu í vináttuleik þjóðanna í Jakarta í Indónesíu í gær.

Siggi barði stóra og myndarlega trommu sem var búið að koma fyrir inni á vellinum eftir leikinn og tóku áhorfendur vel undir ásamt leikmönnum íslenska landsliðsins eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert