Viðar með glæsilegt mark – myndskeið

Viðar Örn Kjartansson skoraði tvö mörk fyrir Maccabi Tel Aviv …
Viðar Örn Kjartansson skoraði tvö mörk fyrir Maccabi Tel Aviv í kvöld. AFP

Viðar Örn Kjartansson skoraði tvö mörk í 3:1 sigri Maccabi Tel Aviv á Maccabi Haifa í kvöld í efstu deild Ísraels í knattspyrnu. Fyrra mark hans var einkar glæsilegt en það kom eftir aðeins rúmlega 10 sekúndna leik.

Hann fékk þá langa sendingu úr öftustu varnarlínu Tel Aviv og fór illa með varnarmenn Maccabi Haifa og þrumaði svo knettinum glæsilega í netið.

Síðara mark hans kom á 58. mínútu. Viðar er kominn með 10 mörk í deildinni á þessari leiktíð. Tel Aviv hefur 38 stig, jafn mörg og Hapoel Beer Sheva í efstu tveimur sætum deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert